Taco pasta
Kryddblandan:
2 tsk cumin
1/2 msk paprika
1/2 msk mexican chili
1/4 tsk hvítlauksduft
1/4 tsk laukduft
1/2 tsk oregano
1/2 tsk salt
350 g nautahakk
1 lítill rauðlaukur, saxaður
1 lauf hvítlaukur, pressað
1 gul paprika
1 rauð paprika
1/2 dl maís, frosinn
1 tsk olía til steikingar
200 g penne pasta
1 dós hakkaðir tómatar
500 ml vatn
2 teningar nautakraftur
Meðlæti (eða dreift yfir):
2 tómatar skornir smátt
iceberg, skorið í þunna strimla
svartar ólifur
rifinn ostur
lárpera
Byrjið á á því að hita olíu á pönnu og steikja hakkið. Þegar búið er að loka kjötinu má bæta lauknum og hvítlauk út á pönnuna og steikja áfram í 1-2 mín. Þvínæst er kryddum bætt við og steikt áfram í 1 mín. Tómötum, vatni og kjötkraft bætt út á ásamt þurru pastanu. Náið upp suðu og setjið lokið yfir. Leyfið réttinum að sjóða við vægan hita í 10-15 mínútur eða þar til pastað er soðið. Hrærið af og til svo að pastað nái að soðna í sósunni.
Berið fram með iceberg, tómötum, ólifum, rifnum osti og lárperu.